- 40-50 stykki
5 tsk þurrger, 3 dl. mjólk., 3 dl. heitt vatn, 1 tsk. salt, 1 msk. sykur, 2 msk. matarolía, 12 dl. hveiti. Fylling: 1 dós niðursoðnir tómatar, 2 msk. chilisósa, 3 msk. tómatsósa, 1 msk. matarolía, 2-3 msk. óreganó (bergmynta), 1 tsk. salt, 1-2 tsk. hvítlauksduft (má setja meira fer bara eftir smekk hvers og eins), 2 tsk. sykur.
Blandið mjólk og vatni saman í skál þannig að það verði 37° og hrærið gerið út í. Bætið sykri, salti og olíu út í ásamt hluta af hveitinu eða þar til blandan verður mjög þykkur grautur. Stráið hveiti yfir og látið lyfta sér í 30-40 mín. Fylling: Blandið öllu saman í pott og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. eða þar til fyllingin hefur þykknað nokkuð. Kælið fyllinguna í vatnsbaði.
Takið deigið og hnoðið það í létt deig. Skiptið því í tvo hluta og fletjið hvorn fyrir sig. Smyrjið fyllinguna yfir útflatt deigið og rúllið upp. Skerið u.þ.b. 2 cm þykka snúða og raðið þeim á plötu. Látið lyfta sér í 20-30 mín. Penslið með olíu og bakið í miðjum ofni við 200°C í u.þ.b. 20 mín. Góðir snúðar með súpu eða ölglasi.
Ath. Bæta má osti ofan á snúðana áður en þeir fara í ofninn. Þá er olíunni sleppt. Einnig má blanda rifnum osti í fyllinguna.