- uppskrift að 16 kökum
150 g smjör ósaltað, 2 dl hrásykur, 2 egg, 3 dl hveiti, 1 tsk lyftiduft (vínsteins), 1/2 dl hrein jógúrt, 3 og 1/2 dl bláber fersk eða frosin
Krem: 6 msk rjómaostur, 3 msk 10% sýrður rjómi, flórsykur eftir smekk (smakka sig áfram), smá vanillusykur, hrært allt vel saman
Smjör og sykur hrært létt og ljóst. Eitt egg sett í einu og hrært á milli. Hveiti, lyftidufti, jógúrt og berjum blandað saman við. Deigið sett í muffinsform og bakað við 200°C í u.þ.b. 15 mín. Kökurnar látnar kólna aðeins áður en kreminu er smurt á og e.t.v. skreytt með berjum. Tilvalið að nota þessa grunnuppskrift og skipta um bragðefni, t.d. súkkulaði í stað bláberja o.s.frv.