31.7.2011

Bananabrauð

3-4 bananar (meðalstórir ca. 180 gr hver), 3/4 msk sykur, 1 egg, 2 bollar hveiti, 1 tsk matarsódi, 1/3 tsk salt.

Bananarnir eru stappaðir, síðan er allt sett í hræriskál og hrært saman á stuttum tíma, alls ekki hræra of lengi. Sett í smurt bökunarform (jólakökuform) og sett inn í ofn við 185° C í 1 klst.

NB passið ykkur að setja frekar minna hveiti er meira til að byrja með, ef deigið er mjög blautt skal bæta meira hveiti í því ef það fer mjög blautt inn í ofnin kemur það hálfhrátt út úr honum.

Hollustubollur

Aðalatriðið er að það þarf að vera 1 kg af þurrefni. Það er gott að hafa 1/3 af því hveiti, smá haframjöl. Einnig er gott að hafa sesamfræð. Ath. að það er frekar þungt að hafa mikið af fræjum.
1 poki þurrger, 1 tsk salt, 2 bollar matarolía, 1 bolli mjólk, 1 1/2 bolli sjóðandi vatn.

Öllu hrært létt saman með sleif í hnoðskál. Síðan er sjóðandi vatni hellt í vaskinn og skálin sett ofan í. Munið að lofttæma skálina eins og á að gera. Þetta þarf síðan að hefast í rólegheitunum, og það þarf að passa að vatnið í vaskinum sé vel heitt. Eftir 1/2 til 1 klst er skálin tekin upp úr vaskinum og hún hrist vel og vandlega eða þar til deigið er orðið nokkurnveginn ein heild. Síðan skal hnoða deigið þar til það hættir að loða við fingurna. Stundum þarf að bæta við smá hveiti eða vatni. Það fer allt eftir því hvort deigið er of blautt eða þurrt. Síðan eru bollur mótaðar, mjög gott er að bleyta þær að ofan með vatni og stinga þeim í skál með fræjum. Þar á eftir eru bollurnar settar á ofnplötu (ekki gleyma bökunarpappírnum), bakast í 190°C (blástursofn) þar til það er orðið ljósbrúnt að lit.

Skonsur

- 32 stykki

8 dl hveiti, 1 tsk salt, 2 tsk sykur, 5 tsk lyftiduft, 100 g smjör, 1 egg, 4 dl mjólk .

Bræðið smörið. Blandið öllum þurrefnunum saman í skál. Sláið eggið sama n við mjólkina og hrærið henni saman við þurrefnin ásamt smjörinu. Skiptið deiginu í lítil bréfmót og bakið í miðjum ofni við u.þ.b. 220°C í 10-12 mín.

Snúðar með ítölskum keim

- 40-50 stykki

5 tsk þurrger, 3 dl. mjólk., 3 dl. heitt vatn, 1 tsk. salt, 1 msk. sykur, 2 msk. matarolía, 12 dl. hveiti. Fylling: 1 dós niðursoðnir tómatar, 2 msk. chilisósa, 3 msk. tómatsósa, 1 msk. matarolía, 2-3 msk. óreganó (bergmynta), 1 tsk. salt, 1-2 tsk. hvítlauksduft (má setja meira fer bara eftir smekk hvers og eins), 2 tsk. sykur.

Blandið mjólk og vatni saman í skál þannig að það verði 37° og hrærið gerið út í. Bætið sykri, salti og olíu út í ásamt hluta af hveitinu eða þar til blandan verður mjög þykkur grautur. Stráið hveiti yfir og látið lyfta sér í 30-40 mín. Fylling: Blandið öllu saman í pott og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 20 mín. eða þar til fyllingin hefur þykknað nokkuð. Kælið fyllinguna í vatnsbaði.

Takið deigið og hnoðið það í létt deig. Skiptið því í tvo hluta og fletjið hvorn fyrir sig. Smyrjið fyllinguna yfir útflatt deigið og rúllið upp. Skerið u.þ.b. 2 cm þykka snúða og raðið þeim á plötu. Látið lyfta sér í 20-30 mín. Penslið með olíu og bakið í miðjum ofni við 200°C í u.þ.b. 20 mín. Góðir snúðar með súpu eða ölglasi.

Ath. Bæta má osti ofan á snúðana áður en þeir fara í ofninn. Þá er olíunni sleppt. Einnig má blanda rifnum osti í fyllinguna.

Kanelsnúðar

100-150 gr. smjör eða smjörlíki, 5 dl mjólk, 50 gr. ger, 1-1,5 dl sykur, 1/2 tsk. salt, 2 tsk. kardimommudropar, 16-17 dl hveiti. Fylling: 50 gr. smjörlíki eða smjörvi, 2 dl sykur, 2 msk kanell.

Bræðið smjörið, bætið útí mjólk og hitið í 37°C. Myljið gerið í stóra skál og hellið vökvanum yfir og hærið þar til gerið er uppleyst. Blandið þurrefnunum útí en skiljið eftir smá hveiti til að hnoða með. Látið hefast undir dúk í ca. 40.mín. Hnoðið deigið og skiptið því í tvennt, fletjið út hvort stykki um sig í 2 aflangar kökur. Smyrjið smjörinu á, stráið yfir sykri og kanel, rúllið upp. Skerið hverja rúllu í 24 bita, látið í pappírsform á bökunarplötu og dúk yfir. Látið hefast í 30-40.mín, penslið með eggi og stráið perlusykri eða möndlum yfir. Bakist í miðjum ofni við 250°C í 6-8.mín. Látið kólna undir dúk á bökunarrist.

Frönsk súkkulaðiterta*

200 g saltað smjör, 200 g dökkt súkkulaði, 300 g sykur, 100 g hveiti, 6 egg

Bræðið saman súkkulaði og smjör yfir vatnsbaði. Bætið sykri og hveiti saman við í smáum skömmtum og hrærið varlega saman við deigið með sleif. Deigið á að hafa mjúka áferð. Bætið við eggjunum einu í einu. Smyrjið 24-26 cm form með smjöri og hellið deiginu út í. Bakið við 180°C í 30 mín.

* uppskrift fengin utan af Grand Fermage smjörpakka

Bláberjamö​ffins með rjómaostak​remi

- uppskrift að 16 kökum

150 g smjör ósaltað, 2 dl hrásykur, 2 egg, 3 dl hveiti, 1 tsk lyftiduft (vínsteins), 1/2 dl hrein jógúrt, 3 og 1/2 dl bláber fersk eða frosin

Krem: 6 msk rjómaostur, 3 msk 10% sýrður rjómi, flórsykur eftir smekk (smakka sig áfram), smá vanillusykur, hrært allt vel saman

Smjör og sykur hrært létt og ljóst. Eitt egg sett í einu og hrært á milli. Hveiti, lyftidufti, jógúrt og berjum blandað saman við. Deigið sett í muffinsform og bakað við 200°C í u.þ.b. 15 mín. Kökurnar látnar kólna aðeins áður en kreminu er smurt á og e.t.v. skreytt með berjum. Tilvalið að nota þessa grunnuppskrift og skipta um bragðefni, t.d. súkkulaði í stað bláberja o.s.frv.

Afmælisgóðgæti

100 g suðusúkkulaði, 100 g karamellufyllt súkkulaði, 100 g smjör, 4 msk síróp, 4 bollar Kellogg´s Rice Krispies.

Krem: 25-30 Nóa töggur (karamellu), 1 dl rjómi, 1 1/2 dl þeyttur rjómi, 1 vænn banani.

Bræðið súkkulaði, smör og síróp í potti. Setjið Rice Krispies í bráðina, hrærið saman og setjið í form með smjörpappír og látið kólna. Krem: Skerið niður einn góðan banana, setjið hann saman við u.þ.b. 1 1/2 dl af þeyttum rjóma og smyrjið ofan á botninn. Hitið afganginn af rjómapelanum (1 dl) og bræðið töggurnar í honum við vægan hita. Látið kólna í smá stund og setjið síðan ofan á rjómann.

Brownies

300 g síríus suðusúkkulaði, 4 egg, 3-4 hnetukjarnar (val- eða heslihnetur), 4 dl sykur, 200 g brætt smjör, 4 dl hveiti, 2 tsk lyftiduft.

Brytjið 200 g af súkkulaðinu og bræðið það yfir vatnsbaði. Brytjið hneturnar. Þeytið eggin og sykurinn vel, bætið bræddu smörinu, þurrefnunum, súkkulaðinu og hnetunum út í og hrærið vel. Smyrjið deiginu í ofnskúffu og bakið í u.þ.b. 175°C í 25 mín. neðst í ofni. Kælið og skerið niður í litla bita. Bræðið afganginn af súkkulaðinu (100 g) í vatnsbaði og setjið ofan á bitana.

Djöflakaka

1 3/4 bolli hveiti, 1 tsk salt, 1 tsk matarsódi, 1/2 bolli sykur, 2/3 bolli mjólk, 2 stk egg, 100 gr smjörlíki, 1 tsk vanilludropar. Krem: 1 bolli sykur, 1/3 bolli vatn, 2 eggjahvítur.

Hræra vel saman sykri og smjörlíki. Bæta síðan eggjunum út í og hræra vel. Blandið þurrefnunum saman sér og vökvanum sér. Bætið þurrefnunum og vökvanum svo í slurkum út í og hrærið í á milli. Varist að hræra mikið eftir að síðasta slurknum hefur verið bætt úr í því þá verður deigið seigt. Bakist við 180-200° C, hún er tilbúin þegar hún byrjar að losna frá köntunum.

Kremið: Sjóðið vatnið og látið sykurinn leysast upp í því. Eggjahvítunum er hrært saman í skál og sykurvatninu er bætt smám saman út í meðan hrært er.

Einföld eplakaka

Deig: 125 g sykur, 125 g hveiti, 125 g smjörlíki.

Fylling: 4-5 epli, kanelsykur, súkkulaðirúsínur, salthnetur.

Afhýðið og sneiðið eplin og leggið í eldfast mót. Stráið kanelsykri og súkkulaðirúsínum yfir. Deigið: Hnoðið öllu saman og myljið ofan á súkkulaðirúsínurnar.

Bakið við 180°C í 30-40 mín.

Jógúrtmöffins

2 1/2 bolli hveiti, 2 bollar sykur, 220 gr smjörlíki lint (ekki brætt), 3 egg, 1/2 tsk matarsódi, 1 tsk vanilludropar, 150 gr suðusúkkulaði saxað, 1 dós kaffijógúrt.

Öllu er hrært saman með þeytara, sett í lítil bréfform og bakað við 190-200°C í 10-13 mín.

Pönnukökur

2 1/2 dl hveiti, 1/4 tsk salt, 1 tsk sykur, 1/2 tsk lyftiduft, 1-2 egg, 3-4 dl mjólk, 25 gr brætt smjörlíki, vanilludropar. Öllu hrært saman.

Texmex súpa

2 hvítlauksrif, 2 rauðlaukar, 2 tsk cummin, ½ tsk cayenne pipar, ¼ tsk chilli duft, 1 msk paprikuduft, 2 tsk púðursykur, 1 msk tómat purée, ½ tsk oregano,2x 400g dósir nýrnabaunir, 1x 400g dós niðursoðnir tómatar, 900 ml vatn

Meðlæti: Rauðlaukur, paprika, avokadó, kóríander, tortilla flögur, sýrður rjómi, rifinn ostur

Steikið laukinn í olíu í örfáar mínútur eða þar til hann hefur náð að mýkjast. Hrærið cumini, cayenne, chilli og papriku saman við laukinn og látið krauma í um mínútu. Bætið við pýðursykri, purée og oreganó og hrærið vel saman. Henda nýrnabaunum saman við vatnið í stórum potti ásamt niðursoðnum tómötum. Setjið lok á pottinn og látið sjóða við vægan hita í 20 mínútur. Súpan látin kólna aðeins en síðan maukuð með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Borin fram með rifnum osti, blöndu af grænmeti, sýrðum rjóma og tortillum.