17.3.2006

Ítölsk grænmetissúpa

1 laukur, 2 gulrætur, 1 sellerístilkur, 2 kartöflur (ósoðnar), 1/2 blómkálshöfuð, 3 hvítlauksrif, matarolía til steikingar, 1 1/2 lítri vatn, 3 grænmetisteningar, 400 gr tómatar í dós, 3 msk tómatþykkni (tómatpuré), 1 tsk mejram, pipar eftir smekk, 2 dl pastafiðrildi, 2 msk steinselja, 3 msk parmesanostur.

1. Saxið laukinn, sneiði gulrætur og sellerístilk og skerið kartöflur í litla bita. Skerið blómkálið í lítil búnt. Merjið eða saxið hvítlaukinn.

2. Hitið olíuna í stórum potti og léttsteikið lauk og hvítlauk (fyrst laukinn, síðan hvítlaukinn). Setjið allt niðursoðið grænmeti í pottinn og látið krauma í olíunni í 2-3 mín.

3. Bætið vatni og og grænmetisteningum, niðursoðnum tómötum og tómatþykkni í pottinn. Kryddið með mejram og pipar.

4. Látið súpuna sjóða við vægan hita í um 20 mín. og sjóða pastafiðrildin í súpunni síðustu 10 mín.

5. Sáldrið saxaðri steinselju og parmesanosti yfir súpuna rétt áður en hún er borin fram.